Hvað er að gerast hér????
04.07.2006 14:29:22 / pugga

Dugnaðurinn að drepa mann!!

Já mín bara dugleg að blogga, enda hafa verkefnin hérna í vinnunni alveg hrannast upp, ég er orðin tölvufíkill og leik mér iðulega í pacman milli þess sem ég les stærðfræði fyrir sumarprófið í haust.

En í síðustu viku fór ég á ía-víkingur þar sem við unnum glæsilegan sigur á þeim 4-1, ég var varla búin að jafna mig á sigurvímunni þegar við unnum fh 2-1 í bikarnum, en mætum val næst 23 eða 24 júlí. Spennandi!! Ég reyndar komst ekki á fh leikin en er samt ennþá í sigurvímu!!!

Svo fór ég í útileigu um helgina, á föstudagin brunuðum við Helga Sólveig, Lilja og Bjössi út úr bænum og lentum á hallgeirsey, vorum ekki alveg sátt við stemminguna þar og áttuðum við okkur á því að við værum að eldast. Þrátt fyrir afsakplega unglegt útlit sem ég hef (miðað við um dagin hélt kona að ég væri 15, og svo þegar ég borgaði gjaldið í sund f. 12-18, og fór í blóðprufu og átti að fá frítt því ég var undir 18 og ég tek það fram að ég var 24+ þegar þetta gerðist, en svona gæti ég haldið áfram næstu 2 klst.) Allavena við ákváðum bara að bruna til Ólafsvíkur á færeyska daga. Það var hörkustuð, fórum á ball og höfðum gaman.

Djöfull erum við hressar stelpurnar ég og Lilja endar byrjaðar að drekka fyrir ballið.

En á ballinu var Jónsi og við misstum alveg vatn yfir líka þessum rosa líkama... namminamminamm... sjáiði

en jæja adios

Benný

Lilja skrifaði
mikið rosalega erum við alltaf hressar... :) og sjá manninn.. ég er ennþá að láta mig dreyma um þennan líkama... takk fyrir frábæra helgi skvísan mín.. Love Lilja
Bogi skrifaði
Bara beilað á Hallgeirsey. Ég sem kom að leita að þér á laugardaginn

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.