Hvað er að gerast hér????
21.06.2006 13:09:53 / pugga

Sjæsemæse

Núna er ég að vinna og það er svo leiðinlegt því ég hef ekkert að gera.. Held að þau séu að reyna að kvelja mig hægt og rólega sem mun að lokum leiða mig til dauða. Ef slíkt gerist þá hef ég ákveðið lögin sem á að spila í jarðaförinni: 1) Ertu þá farinn með skítamóral, 2) staying aliver með bee gees 3) if you don´t know me by now you will never never know mee úúú... (reyndar stolið frá einni stelpu með mér i saumó en ef ég fer fyrr þá so sorry) Vá mætti halda ég væri þunglynd hérna.. en nei ekkert svoleiðis bara drepleiðist í vinnunni.

Dæmi um samræðum varðandi einn mann sem hefur heimsins mesta aulahúmor. Ein konan segir "það þarf að endursenda þetta" þá segir hann: "hvert æltaru að senda endurnar hahahaha" Vá þetta er næstum fyndið því þetta er svo sorglegt, svo þurfti ég að eyða hálfum degi í síðustu viku að vinna með honum og það var rosalegt fjör (sagt í kaldhæðni)

En annars ekkert að frétta, gæti þó haldið áfram að væla. Ekki gaman! Fór í bíó í gær að sjá da vinci code, ákvað að prófa að fara ein - geri það pottþétt aftur, mjög þægilegt. 8)

kveðja

Bennsla brennsla

Og já hér með auglýsi ég eftir henni Sólveigu Fríðu..

Lilja skrifaði
Gaman að sjá þig blogga elskan mín.. takk fyrir gærkvöldið.. það var nú meira ástandið á okkur... við að bulla saman.. er það sniðugt??

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.