Hvað er að gerast hér????
02.08.2006 14:51:06 / pugga

Ekki enn byrjuð að nota fyrirbyggjandi hrukkukremið en samt...

Já ég fór í sund í gær með henni Telmu minni. Ekki frásögufærandi nema ég kem að afgreiðsluborðinu og segi við konuna "hvað kostar" (og held á 500 kr seðli), konan segir"hvað ertu gömul" ég segi "ég er 18" þá segir konan "já þú rétt sleppur það kostar 125 kr".

Og ég sem er ekki enn byrjuð að nota hrukkukremip mitt góða. Jahérna hér, veit ekki hvernig ég á að taka þessu. Ákvað samt að borga 125 fyrst hún trúði mér en halló þetta eru heil 7 ár.

kveðja

Benný hin súperunglega


» 11 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 15:44:51 / pugga

Allt að gerast

jáhá sko allt að gerast, það er bara alveg jafn mikið að gera í vinnunni. skil ekki af hverju er ég er ekki duglegri að blogga þegar ég hef svona mikin tíma. En ég get ekki opnað internetið um helgar því ég fæ ofnmæi af því á virkum dögum.

En ég á vinkonu sem getur spilað á gítar þó hún geti ekki spilað á gítar. Fattið þið?

kveðja Benný


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 14:28:43 / pugga

Shitturinn titturinn

Held ég sé að verða of langt leidd með að kenna Júlla að tala. Í nótt dreymdi mig að við vorum að spjalla saman. Og ég var geðveikt ánægð hvað hann skildi mig og enn ánægðari að ég gat skilið hann..

Allamallaskítaralla

kv. Benný

AľČ

» 5 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 15:20:11 / pugga

Dansi Dansi dúkkan mín

Ég ætlaði að dansa upp á stól, hitti ekki og datt. Engar áhyggjur mér heilsast vel er ekki brotin né brengluð.

Svo var sumarhátíð dísanna á laugardagin, svaka stuð, fékk að handmjólka kú.

Svo var tjúttað á eftir, líka stuð.

Júlli kann ekki ennþá að segja mamma þannig að ég held ég reyni að kenna honum að segja matur.

Farin

Ble

Benný


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 14:29:22 / pugga

Dugnaðurinn að drepa mann!!

Já mín bara dugleg að blogga, enda hafa verkefnin hérna í vinnunni alveg hrannast upp, ég er orðin tölvufíkill og leik mér iðulega í pacman milli þess sem ég les stærðfræði fyrir sumarprófið í haust.

En í síðustu viku fór ég á ía-víkingur þar sem við unnum glæsilegan sigur á þeim 4-1, ég var varla búin að jafna mig á sigurvímunni þegar við unnum fh 2-1 í bikarnum, en mætum val næst 23 eða 24 júlí. Spennandi!! Ég reyndar komst ekki á fh leikin en er samt ennþá í sigurvímu!!!

Svo fór ég í útileigu um helgina, á föstudagin brunuðum við Helga Sólveig, Lilja og Bjössi út úr bænum og lentum á hallgeirsey, vorum ekki alveg sátt við stemminguna þar og áttuðum við okkur á því að við værum að eldast. Þrátt fyrir afsakplega unglegt útlit sem ég hef (miðað við um dagin hélt kona að ég væri 15, og svo þegar ég borgaði gjaldið í sund f. 12-18, og fór í blóðprufu og átti að fá frítt því ég var undir 18 og ég tek það fram að ég var 24+ þegar þetta gerðist, en svona gæti ég haldið áfram næstu 2 klst.) Allavena við ákváðum bara að bruna til Ólafsvíkur á færeyska daga. Það var hörkustuð, fórum á ball og höfðum gaman.

Djöfull erum við hressar stelpurnar ég og Lilja endar byrjaðar að drekka fyrir ballið.

En á ballinu var Jónsi og við misstum alveg vatn yfir líka þessum rosa líkama... namminamminamm... sjáiði

en jæja adios

Benný


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 14:58:52 / pugga

LLLAAAANNNNGGGGTTTT!!!

Jæja fjörið eykst hérna í vinnunni (sagt í kaldhæðni) ég er orðin mjög kalhæðin þessa dagana. En það er ekki margt sem hefur á daga mína drifið, búin að fara á tvo fótboltaleiki, ætla ekki að tala meira um þá, en ætla á ía-víking í kvöld. Ég mun mæta með trommusett og lúður. Ég ætla að vera á við fjóra, en miðað við hvað ég hef borðað mikið undanfarna daga þá er ég á góðri leið að vera á við fjóra. Verð að fara að gera eh í málunum

En vegna smá aukins áhuga á fótbolta og pólitík þá sagði ein góð vinkona mín að það vantaði bara á mig pung? ég neita því ekki að óneitanlega eru það fleiri kk sem hafa áhuga á fótbolta og stjórnmálum verð ég að segja, a.m.k. það fólk sem á vegi mínum hafa verið, en af hverju er það svo? hmm.. mar spyr sig.

Já, svo er Jón Sigurðson búin að tilkynna það að hann ætli að bjóða sig fram sem formann framóknar... þekki ekkert til hans, þannig að ég veit ekki hvernig mér líst á það, kemur í ljós ásamt því að það kemur í ljós hvort fleiri bjóða sig fram!! En ég verð að segja að ég get ekki beðið eftir flokksþingi hjá flokknum þann 19. Ágúst vúhúvei.. :haha:

jæja svo síðustu helgi var kokteildjamm með hagfr.skvísunum, sem var svaka fjör, fyrir utan að ég fékk marblett eftir að hafa farið upp á stól að dansa og rann svo af stólnum (tek það fram datt ekki heldur rann), fór svo á vegamót og endaði svo á rölti í bænum (sumir myndu kalla það ráf)

Já og að lokum (vá get ekki hætt að skrifa, enda hef ég ekkert annað að gera í vinnunni) En mín mun bara mæta galvösk í húsmæðraskólan í haust, ætla að taka mér einnar annar frí frá hagfærði og læra að elda, straua og þrífa vúhú..

En later skater


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.06.2006 13:09:53 / pugga

Sjæsemæse

Núna er ég að vinna og það er svo leiðinlegt því ég hef ekkert að gera.. Held að þau séu að reyna að kvelja mig hægt og rólega sem mun að lokum leiða mig til dauða. Ef slíkt gerist þá hef ég ákveðið lögin sem á að spila í jarðaförinni: 1) Ertu þá farinn með skítamóral, 2) staying aliver með bee gees 3) if you don´t know me by now you will never never know mee úúú... (reyndar stolið frá einni stelpu með mér i saumó en ef ég fer fyrr þá so sorry) Vá mætti halda ég væri þunglynd hérna.. en nei ekkert svoleiðis bara drepleiðist í vinnunni.

Dæmi um samræðum varðandi einn mann sem hefur heimsins mesta aulahúmor. Ein konan segir "það þarf að endursenda þetta" þá segir hann: "hvert æltaru að senda endurnar hahahaha" Vá þetta er næstum fyndið því þetta er svo sorglegt, svo þurfti ég að eyða hálfum degi í síðustu viku að vinna með honum og það var rosalegt fjör (sagt í kaldhæðni)

En annars ekkert að frétta, gæti þó haldið áfram að væla. Ekki gaman! Fór í bíó í gær að sjá da vinci code, ákvað að prófa að fara ein - geri það pottþétt aftur, mjög þægilegt. 8)

kveðja

Bennsla brennsla

Og já hér með auglýsi ég eftir henni Sólveigu Fríðu..


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 00:56:18 / pugga

Áfram víkingur

Ég vil gleðja lesendur mína á þessari síðu með því að tilkynna þeim að víkingur vann val 3-1.. já þetta var rosa skemmtilegur leikur... við unnum val, við unnum val (röddin á að hljóma ákveðið þegar þið þyljið þessi orð upp)... En enn og aftur ætla ég að gleðja ykkur og endur taka mig Víkingur vann Val 3-1. Hins vegar gekk ekki jafn vel í dag, það var jafntefli við Grindavík, þrátt fyrir ég (lukkudýrið þeirra) hafi mætt á seinni hálfleik.

En smá pæling.. hér að ofan segi ég við unnum val, eins þegar íslendingar eru að keppa og sigra þá segir maður við unnum. Af hverju segir maður við unnum.. Eins og áðan þá tók ég ekki nokkurn þátt í leiknum.. jú ok var áhorfandi.. en það er ekki alltaf sem ég horfi á leiki þegar við vinnum en samt unnum við.. og ég veit að það tala vel flestir svona. Ja hérna hér!! 8)

allavena
víkingskveðja
Benný sem vann val


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.06.2006 15:50:04 / pugga

exbé

Kláraði prófin þann 12. maí, minnir mig, fór þá að vinna í kosningunum fyrir framsókn. sem var alveg rosalega gaman og byrjaði að vinna í dag. Svo ætla ég til ak um helgina.. veiheivúhú..

Hins vegar er líf mitt orðið leiðinlegt (finnst eflaust öðrum en mér) því það eina sem ég hef gaman að tala um er stjórnmál og aftur stjórnmál og svo stundum stráka, meina vá við vinkonurnar getum eytt alveg sekúntum saman í að ræða um þá. Kannski dáldil mikil tímaeyðsla.. hmm.. :$ mar spyr sig

Jú og nýjustu fréttir af Mjallhvít og dvergunum.. ok hef ekki mikið talað við dverginn en held það sé eh í gangi á milli mjallhvítar og eins dvergsins.. hmm...

jæja komið gott

kveðja Benný.


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 16:04:14 / pugga

Mjallhvít og dvergarnir 7

Jahá... ég á nú eina vinkonu sem að hefur glatt mig alveg rosalega á annars þessum döprum tímum sem eru þessi blessuð próf. En aldrei hefur hún glatt mig jafn mikið og í dag. Þessi elzka fór á tjúttið í gær og hösslar þarna gaur sem er nú ekki frásögu færandi. Nema það svo fer hún heim til hans og það hitnar í kolunum en þá skreppur hann aðeins í burtu... svo kemur hann til baka og mættur í búning, já drengurinn vildi fara í hlutverkaleik og mætti í MJALLHVÍTARBÚNING og ekki nóg með það þá var búningurinn víst ansi þröngur á hann! ætli hann hafi fengið búningin í leikbæ???..... aldrei á lífi mínu hef ég hlegið jafn mikið!!!!!


kveðja Benný

» 22 hafa sagt sína skoðun

15.04.2006 23:31:38 / pugga tveir

Ferming ársins...

Gleðilega páksa....

Við Tryggvi komum suður á miðvikudaginn og það er alveg yndislegt. Vil endilega deila með mér atviki fimmtudagins, en maður er farin að venjast ýmislegu þegar kemur að fjölskyldunni. Amma hringdi í mömmu sem sagt fyrr í vikunni eða síðustu viku, er ekki alveg viss, og spurði hvort hún hefði nú ekki alveg örugglega fengið fermingarboðskort til hennar Sigurósu frænku. Jú hún rámaði nú eitthvaði í það, jú jú hún fékk líka boðskort. Hringdi svo í mig og tilkynnti mér það að okkur væri boðið í fermingu sem væri sem sagt á skírdag, og hvort við Tryggvi gætum ekki alveg örugglega komið með. Fimmtudagurinn rann upp og við Tryggvi förum til ömmu og þar verðum við öll 6 samferða í Hafnafjörðinn í Frímarahúsið þar sem átti nú að staðfesta skírn Sigurósar. En þegar við komum á áfangastað þá var einungis EINN bíll fyrir utan og eitthvað voða lítið um að vera.

Þannig að gemsinn var dreginn upp og gengið úr skugga um hlutina. NEI NEI haldiði ekki bara að þessi ferming hafi verið fyrir TVEIMUR ÁRUM...lol lol yndislega amma mín hafði fundið gamalt fermingarboðskort, sem sagt þá var ferming þessara frænku minnar fyrir tveimur árum (henni til varnaðar þá var engin dagsettning víst á kortinu sem og var gömul mynd af frænkunni). En það að mamma hafi tekið þátt í þessari .... er svo sem líka ekki skrítið þar sem hún er stundum frekar utan við sig.....en þar sem hele familien var í sínu fínasta og komin á ról þá var bara brunað á Hótel Sögu þar sem fermingarpeningnum var eytt í kvölmáltíð. Afi hafði meiraðsegja samið ljóð fyrir fermingarbarnið og alles hahaha (ekki það að hann sé ekki vanur því biskupinn sjálfur). En þetta er ekki í fyrsta skipti þar sem fjölsyldan lífgar upp á hversdagsleikann með þessum hætti og vonandi ekki sá síðasti..

Bless að sinni og ljúft í minni..

SFK


» 13 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 09:13:13 / pugga

Allt gerist hægt þar sem aldurinn er orðin svo hár

Jæja ég skrifaði eh svaka færslu á mánudagin en það bara þurkaðist út þannig að ég fór bara í verkfall!!!

En allavena þá var ég með pulsubrauðsafmæli síðasta laugardag (pulsubrauð = stelpur). Og það var svaka stuð og var ég orðin alveg helvíti hress af bollunum sem ég var með og fór í bæinn en var ekki alveg jafn hress þar en þreytan var þá farin að segja til sín (væntanlega þreyta frekar en of mikið af áfengi).

Enda var maður svona hress dagin eftir ;)

En nýjasta sem er að frétta af mér er að ég uppgötvaði um dagin að það væri brennari á tölvunni minni, og aðeins búin að eiga tölvuna í eitt og hálft ár... klappa fyrir mér.

Svo hef ég líka komist að því að ég ætti að gerast bifvélavirki. jabb gat nebbla gert við rúðuþurkurnar á bílnum mínum um dagin.Ákvað að þrífa nebbla rúðurnar á bílnum mínum og snéri annarri rúðuþurkunni öfugt þegar ég lét hana niður þannig að það ískraði geðveikt en nei mín er svo klár fattaði það eftir 2 daga að snúa bara rúðuþurkunni við.

En annars lítið að frétta, prófin nálgast og mér heilsast vel miðað við aldur.

kveðja Bennsla


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 15:53:21 / pugga tveir

Blóð dagsins

Jæja haldiði ekki bara að mín hafi gefið blóð í fyrsta skipti í dag. Jú það var tekið um 470 ml. af algjöru eðal blóði (prinsessu blóð, enda var það blátt á litinn ;))

En mér til mikillar undrunar (og jafn sem áður fróðleiks) þá mega hommar ekki gefa blóð, sem mér finnst mjög skrítið. Undir þeim skilmálum sem voru til þess ekki mega gefa blóð þá var meðal annars þetta: Karlmaður sem hefur átt mök við annan karlmann má ekki gefa blóð. En þá spyr ég er einhver munur á pari sem hefur átt rassamök og karlmönnum sem hafa átt þannig mök eitthvað öðruvísi? Má sem sagt kona sem hefur stundað þannig kynlíf gefa blóð en ekki karlmaður? Já þetta eru pælingar....Ég spurði konuna af hverju hommar mega ekki gefa blóð og hún gat ekki svarað mér því, sagði bara að það væri ekki æskilegt, en hafði svo sem ekkert svar af hverju það væri það. Merkilegt....

over and out....AK-city


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 08:58:55 / pugga tveir

AFMÆLIS BARN DAGSINS!!!!!!!!!!!!!!

HÚN Á AFMÆLI Í DAG HÚN Á AFMÆLI Í DAG HÚN Á AFMÆLI HÚN BENNÝ HÚN Á AFMÆLI Í DAG...HÚN ER EKKI LENGUR UNGLAMB Í DAG HÚN ER EKKI LENGUR UNGLAMB Í DAG HÚRRRRRRRRRRRAAAAAAAA

JÁ ÞAÐ HLAT AÐ KOMA AÐ ÞVÍ EINS OG HJÁ ÖLLUM ÖÐRUM: VIL ÉG ÓSKA HENNI YNDISLEGU BENNÝJU MINNI TIL HAMINGJU MEÐ ÁRIN, AÐ LOKSINS VERA KOMIN Á TVÍTUGSALDURINN...HA HA HA HA DJÓK, GAT SAGT ÞETTA FYRIR FIMM ÁRUM HAHAHAHHA....EN ÉG VONA SAMT AÐ DAGURINN VERÐI YNDISLEGUR ÞÓ AÐ LÍFFRÆÐILEGI ALDURINN VERÐUR FARINN AÐ SEGJA TIL SÍN. GETUR EKKI GENGIÐ EINS HRATT OG ÞÚ GERÐIR Í GÆRKVÖLDIÐ, ÞÚ MUNT VÆNTANLEGA FARA AÐ FINNA FYRIR MAGAVANDAMÁLUM (ÓTÍMABÆRUM VINDINGUM OFL.), MINNIÐ FER AÐ SEGJA TIL SÍN (Í DAG MUNT ÞÚ MJÖG LÍKLEGA EKKI MUNA ALLA ÞÁ HLUTI SEM GERÐUST Í GÆR). VIÐ SKULUM SEGJA ÞETTA GOTT GET HALDIÐ ÁFRAM MEÐ HLIÐARVERKANIRNAR SEM FYLGJA AUKNUM ALDRI SÍÐAR.

KNÚS OG FULLT AF KOSSUM ELSKU BESTA VINKONA....HLAKKA TIL AÐ GETA LÁTIÐ VERKIN TALA ÞEGAR VIÐ HITTUMST

ÞÍN VINKONA ...


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 20:08:20 / pugga

shitturinn titturinn

jáhá ég verð 1/4 úr hundraði á morgun. Búin að panta pláss í kirkjugarði, fæ svar á morgun! Samt læt ég enn eins og þegar maður var 7 ára, get ekki sofnað á kvöldin af spenningi fyrir að eiga afmæli og öll síðustu ár þá vakna ég fyrir 9 á afmælisdagin. Veit bara ekki af hverju!!!! Svona asskoti ung í anda greynilega :)

Það gengur ekkert ennþá að kenna Júlla að tala, bara skil það ekki!!!

Já svo ein gullin setning frá Maríni vinkonu minni. Vorum í saumaklúbb um dagin og í honum eru tvíburar, Ragna og Katrín. Svo var Ragna með son sinn þarna og allt í gúddi með það. En þá datt henni Maríni í hug að barnið gæti hafa ruglast í ríminu á hvor væri móðir hans því þær voru svo líkar... hafið þið heyrt annað eins?

Svo annað frá henni Bryndísi, við erum að rúnta á laugaveginu eftir vinnu á mánudag. Þá segir Bryndís allt í einu við mig (tek fram að við erum búnar að þekkjast í 15 ár) "umm Benný í hvaða stjórnmálaflokk ertu?? ég bara man ekki hvað hann heitir" já góðir hálsar ég hélt að augun ætluðu út úr höfðinu á mér ég var svo hissa. Svo sagði hún" mig minnti að það væri Samfylkingin". já hún Bryndis gengur ekki heil til skógar. En svo áttaði hún sig og spurði "heitir hann Framsókn". Æi hún er svoddan yndi hún Bibbalibba mín. Hún sem er alltaf að tuða um hvað hún er klár þessi elzka ;)

kveð að sinni
Benný enn hin unga

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8